Stundum er það svo að þeir síðustu verða fyrstir. Hafi fólk langað að láta sól sleikja andlit eftir dimman veturinn en ekki haft tök á að gera drauminn að veruleika er óvitlaust að bregða sér inn á vef Heimsferða í einum grænum.
Ferðaskrifstofan auglýsir nú sextán nátta ferð á Kanarí fyrir 119.900 á mann miðað við tvo saman. Það þýðir að dagurinn kostar hvern einstakling innan við átta þúsund krónur og betur er vart hægt að fá hér á landi.
Nákvæmlega kostar dagurinn 7.993 krónur á mann miðað við hjón eða par og jafnvel þó gisting sé kannski ekki í hæsta gæðaflokki er fjandakornið ekki einu sinni hægt að lifa dag hér á Fróni og sleppa með átta þúsund krónur.
En hugsa þarf hratt því tilboðið gildir um ferð þann 5. mars eða eftir rétt vikutíma og fá sæti í boði. Tilboðið er reyndar auglýst á 94.900 krónur á vef Heimsferða en þá er miðað við tvo fullorðna og eitt barn á ákveðnum aldri. Það er þó nokk kjánalegt að ætlast til að fólk dragi börn heilar tvær vikur úr skóla sísona með litlum fyrirvara.
Heimasíða Heimsferða hér.






