Tíðindi

Alicante og London á tilboði hjá Wow

  25/02/2013desember 16th, 2013No Comments

Þessi vika byrjar með látum því Wow Air hefur strax auglýst tilboðsverð til tveggja áfangastaða sinna í vor og sumar. Þar er um að ræða tilboðsverð til Alicante annars vegar og London hins vegar.

Tilboð í gangi hjá Wow Air til miðnættis

Tilboð í gangi hjá Wow Air til miðnættis

Þannig fæst til miðnættis í kvöld flug til Alicante á völdum dagsetningum í apríl og maí á 23.800 krónur aðra leið með öllu. Sömuleiðis er hægt að kaupa far aðra leið til London á 15.800 krónur fyrir brottfarir í júní.

Leit Fararheill leiðir í ljós að nokkuð er af ferðum í boði á ofangreindu verði en sem fyrr skal hafa í huga að allur farangur kostar aukalega. Við finnum ferð til Alicante fram og aftur lægst á 43.243 og til og frá London lægst á 32.373 í júní.

Báðar þessar borgir og svæði er þægilegt að heimsækja á umræddum tímum. Hlýtt og notalegt á báðum áfangastöðum án þess að þerra þurfi svita í hvert sinn sem fólk hreyfir legg eða lið.

Heimasíða Wow Air hér.