Áfram heldur sagan endalausa um okurprísa Icelandair. Þar á bæ virðast menn halda að með fráfalli Wow Air megi fara að okra á aumum landanum eins og árið sé 1999.
Rjóminn úr íslensku viðskiptalífi í stjórn Icelandair og mektarmenn að stjórna öllu saman. Samt virðist plan framtíðarinnar eingöngu vera að okra og okra svo ekkert sé nú minnst á að okra.
Nýjasta dæmið vetrarferðir til London. Enginn getur haldið því fram að rellur Icelandair til og frá London í október, nóvember eða desember séu orðnar kjaftfullar af fólki nú þegar. Jú, reyndar hægt að halda því fram en það helber lygi.
Samt er lægsti mögulegi prís með Icelandair fram og aftur þessa mánuði hærra, og stundum mun hærra, en hjá helstu samkeppnisaðilum.
LÆGSTA VERÐ Í OKTÓBER FRAM OG AFTUR

LÆGSTA VERÐ Í NÓVEMBER FRAM OG AFTUR

LÆGSTA VERÐ Í DESEMBER FRAM OG AFTUR

Í öllu ofangreindum dæmum er um að ræða sardínufarrými með ekkert innifalið hjá öllum aðilum. Tékk tekið þann 24. maí 2019 klukkan 19:00 á Google Flights.
Ekki ein einasta ástæða til að sýna Icelandair lit. Þeir komnir í einokunargírinn hér eins og til Toronto, Parísar og New York svo fáir séu nefndir 🙁







