Orð næsta óþörf. Lífeyrissjóðsfyrirtækinu Icelandair virðist ókleift að keppa við nokkurn einasta erlenda flugaðila þarna úti.
Dýrari til Parísar. Dýrari til Toronto og nú dýrari til New York. Fyrir utan auðvitað að vera komnir með feita og óeðlilega einokun á flugi til Kaupmannahafnar með tilheyrandi verðhækkunum. Svo ekkert sé minnst á að Icelandair sýnir því engan áhuga að koma til móts við landa sína til Alicante.
Ódýrasta fargjaldið fram og aftur til New York í júní:

Aðeins 40% lægra verð með United Airlines en Icelandair til New York í næsta mánuði.

Aðeins skárra í júlí. Þar Icelandair aðeins 26% dýrara en United Airlines.

Viti menn! Icelandair aðeins 11% dýrara á lægsta mögulega fargjaldi í ágústmánuði samkvæmt Google Flights.
Víst eru laun starfsfólks Icelandair í drjúgari kantinum í flugheimum og landinn gefur extra plús á það almennt. Fólk þarf jú að lifa og njóta.
En laun starfsfólks helstu flugfélaga Bandaríkjanna eru ekkert í nánasarkantinum heldur. Þeim tekst samt að undirbjóða Icelandair duglega til New York þetta sumarið og það þrátt fyrir að Icelandair bjóði mun fleiri ferðir í hverri viku.
Eitthvað verulega rotið í Vatnsmýrinni…







