Rasistar eru allir þeir sem telja sig merkilegri en annað fólk. Sem þýðir auðvitað að fjölmargir íslenskir forstjórar og stjórnmálamenn eru rasistar. Gott og blessað með það enda fólki frjáls að hafa sínar skoðanir. Verra ef það kallar á vesen í millilandaflugi.

Rasistar víða og þeir gera sig gildandi á öllum vígstöðvum þessi dægrin. Kannski getum við þakkað fávitanum Trump fyrir það…

Rákumst fyrir skemmstu á æði merkilega íslenska fjölskyldu í jarðböðunum við Mývatn. Hver einasti fjölskyldumeðlimur með tattó af hakakrossinum kyrfilega á brjósti eða baki og allir voða stoltir. Fyrir utan kannski að vera æði feitt og ljótt fólk. Svona hillbillís eins og Kaninn myndi kalla það.

Okkar maður umsvifalaust í laugarverði vegna málsins enda á sama tíma nokkuð um dökkt fólk af erlendum uppruna í sömu laug. Sá vildi ekkert aðhafast og því léku tattóveraðir nasistarnir sér í lauginni í klukkustund eins og allt væri eðlilegt. Á meðan var hver einasti ferðamaður, og við líka, að benda á familíuna eins og um skrípaleik væri að ræða.

Vitaskuld átti starfsmaður jarðbaðanna umsvifalaust að henda nasistunum upp úr og láta helvítin greiða tvöfalt plús sekt fyrir fávitahátt en auðvitað hefur kúnninn alltaf rétt fyrir sér svo lengi sem ekkert er vesenið. Gestir þar geta jú leitt hjá sér fjögurra manna familíu sem hatar gyðinga og montar sig af því.

Annað gildir um rasistavesen í stálpípu í 40 þúsund fetum yfir jörðu.

Kona ein af rasistaættum gerði heilmikið uppistand í rellu á leið frá Barselóna til Kíev fyrr í vikunni og atvikið í fjölmiðla sökum þess að nokkrir farþegar náðu velflestu á mynd. Viðkomandi rasisti þurfti reyndar sex glös af sterku áfengi áður en hún hóf að öskra níð yfir alla sem ekki voru skjannahvítir á litinn um borð. Hún linnti ekki látum fyrr en allnokkrir farþegar yfirveguðu hana og teipuðu yfir kjaftinn á henni. Þannig naut hún flugsins það sem eftir var.