Græðgisplebbarnir hjá Boeing eru með böggum Hildar og Ástríðar og gott ef ekki Svandísar líka. Svo fer þegar allt eftirlit er hjá fyrirtækjunum sjálfum, sjá Arnarlax, en ekki hjá opinberum aðilum.

Vélar Boeing öruggar? Kannski en það tekur klárlega lengur en þrjá mánuði að ganga úr skugga um slíkt. Mynd Boeing
Það gengur ekkert allt of vel hjá „sérfræðingum” Boeing frekar en „sérfræðingum” Kaupþings banka fyrir Hrunið. Allt sem á að fara vel endar í tómu tjóni og veseni.
Fréttir dagsins herma að Icelandair þurfi að draga nokkuð úr framboði á flugi sökum þess að Boeing er ekkert að fá neinn grænan stimpil á gamaldags nýjar Max-vélar sínar eins fljótt og „fræðingar” Icelandair vonuðust eftir.
Það kemur okkur hér ekkert á óvart eins og við komum inn á um miðjan mars síðastliðinn þegar við vitnuðum í spekinga Bank of America sem spáðu Max-vélum fríi í þrjá til sex mánuði. Við hér, engir flugspekingar en samt bærilega viti borið fólk, spáðum sex mánuðum að lágmarki og líklega átta til tólf mánuðum.
En kjánalegt hjá Icelandair að búast við bestu hugsanlegu niðurstöðu í spám sínum og fá Max-rellurnar í loftið í júní. Hvaða sérfræðingar eru áskrifendur að bestu hugsanlegu niðurstöðu í rekstrinum? Jú, sömu sérfræðingar og eru engir sérfræðingar. Ekkert frekar en sérfræðingar bankanna ári fyrir Hrunið 2008.
Hvers vegna kjánalegt?
Jú, jafnvel þó spekingar hjá Boeing hefðu haft varaplan í bakhöndinni, sem þeir höfðu ekki, var morgunljóst frá degi eitt að flugmálayfirvöld vestanhafs guldu hnekki feitum fyrir að gefa sísona grænt ljós á allt það sem starfsmenn Boeing sögðu þeim að væri eðalfínt og flott. Bandaríska flugmálastjórnin gat því ekki treyst aftur á starfsfólk Boeing þegar endurmeta á Max-rellurnar. Það hefði þýtt að orðspor bandarískra flugyfirvalda væri ónýtt með öllu.
Og ganga menn úr skugga um öryggi nýrrar farþegavélar með tveimur til þremur túrum eða svo? Neibbs. Fjarri því. Það tekur yfirleitt ár eða tvö og ekki ein einasta ástæða fyrir að bandarísk flugmálayfirvöld létu aftur ná sér við að taka flýtileið við að votta nýja farþegaþotu sem kostað hefur vel yfir þrjú hundruð manns lífið.
Neibbs, við hér giskum á að Max-vélar verði í besta falli farnar að fljúga í september næstkomandi og þá stór spurning hvort Jón og Gulla hafa áhuga að fljúga með þeim vélunum í framtíðinni. Júní var aldrei séns eins og spekingar Icelandair vonuðust eftir.







