Ef marka má spekinga næststærsta banka Bandaríkjanna, Bank of America, verða Max-rellur flugvélaframleiðandans Boeing fjarri góðu gamni í þrjá mánuði að lágmarki og líklega nær sex mánuðum.

Margir undrast vesen Max-véla Boeing en á kannski ekki að koma á óvart. Fyrirtækið hefur skorið duglega niður í staffi hin síðari ár.

Ljúft fyrir þá flugmenn Icelandair sem aðeins mega fljúga Max-rellum að fá þriggja til sex mánaða leyfi á fínum launum sísona ef það gengur eftir. Súrt fyrir hlutafjáreigendur vissulega en hversu gáfulegt er að sjoppa nýjasta nýtt á tölvuöld þegar það tekur fyrirtæki eins og Google og Microsoft mánuði og ár að pressa út vesen og bögg í einföldum símum og forritum. Og þotur nútímans eru tölvustýrðar nánast frá A til Ö.

Bank of America gefur sér reyndar að stór hugbúnaðaruppfærsla sem Boeing vinnur nú að og á að einfalda stjórn vélanna verði tilbúin á næstu vikum. Það næsta fráleitt að okkar mati en gangi það eftir þurfa flugmálayfirvöld að senda rellurnar í nýtt tékk til að ganga úr skugga um að ekkert sé athugavert. Slíkt tékk tekur að minnsta kosti þrjá mánuði og við giskum á sex til sjö mánuði að lágmarki.

Ekki liggur morgunljóst fyrir hvort Boeing er raunverulega bótaskylt gagnvart þeim flugfélögum sem keypt hafa Max-vélar. Lággjaldaflugfélagið Norwegian notar þær mikið í sínu flugi og kristaltært að það flugfélag fer endanlega yfir um nema Boeing taki á sig fjárhagslegt tap þess flugfélags. Á hinn bóginn er ekki víst hvort Boeing, jafnvel þó fyrirtækið eigi nóga peninga, hafi fjárhagslegt afl til að bæta tugum flugfélaga um heim allan upp tekjutap vegna Max um margra mánaða skeið.

Sennilegast því ágæt ástæða til að selja þau bréf í Boeing sem þú kannt að eiga. Jafnvel þó fyrirtækið nái flugi á ný einn góðan veðurdag er skaðinn skeður. Orðspor Boeing mun seint ná hæðum á nýjan leik.