Eftir því sem við komumst næst gerir ríkisskattstjóri út tólf til fimmtán manna teymi hvers starf er eingöngu að koma upp um þá leigja út íbúðir á Airbnb án þess að gefa það upp til skatts. Í Kaliforníu kunna menn miklu betri leið til þess arna.

Sumir kunna tökin á Airbnb og sumir ekki.

Yfirvöld í strandbænum Santa Monica við Los Angeles fara engan Krísuvíkurafleggjara til að fá sínu fram. Í stað þess að gera út her fólks, á kostnað skattborgara, til að sekta þá sem leigja út íbúðir til ferðafólks án tilskilinna leyfa, gerir bærinn Airbnb sjálft ábyrgt fyrir slíku eftirliti.

Milljarðamæringarnir hjá Airbnb voru svo sannarlega ekki á því að fallast á slíkt svo höfðað var mál vegna þessa og niðurstaðan varð ljós í vikunni: Airbnb tapaði.

Eftirleiðis er það því Airbnb sjálft sem er bótaskylt til Santa Monica ef á vef þeirra finnst fólk sem leigir út íbúðir eða herbergi án leyfis bæjaryfirvalda. Engin ástæða til að skattborgarar greiði fyrir slíkt eftirlit dýru verði.

Hér heima, og víðast hvar annars staðar, fara töluverðir fjármunir úr borgar- eða ríkishirslum til að hafa eftirlit með þeim skemmdu eplum sem vilja græða á tá og fingri án þess að skattmann njóti góðs af. Það er Krísuvíkurafleggjari í hnotskurn.