Þ að er dálítið merkilegt hve seint og illa vestrænir markaðsmenn hafa áttað sig á gildi þess að nota húmor til að koma skilaboðum á framfæri í herferðum sínum. Það muna nefninlega allir fyndin eða skondin skilaboð mun lengur en hitt.

Hjá bandaríska flugfélaginu Jetblue hafa menn þó kveikt á þeirri peru eins og sést á fyndnu kennslumyndbandi þeirra um góða siði í farþegaflugi. Óhætt að fullyrða að fáir vildu lenda við hlið þessa manns í langflugi.