Ekki fyrr höfðum við fjallað um aflýsingu flugs af ókunnum orsökum hjá Icelandair í gær fyrr en BÆÐI íslensku flugfélögin aflýstu slatta af flugferðum. Aflýsingar kannski komnar í tísku?
Eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskoti af vef Keflavíkurflugvallar féllu niður fimm flugferðir hjá Wow Air og Icelandair þennan daginn. Það stórundarlegt mál með tilliti til að veður hefur verið með ágætum og engin önnur flugfélög en þau íslensku hafa aflýst flugi frá landinu.
Sem fyrr er ekki staf um ástæður þessa að finna á vefmiðlum flugfélaganna sem yfirleitt þýðir aðeins að um mannlegt fokköpp er að ræða. Sem aftur merkir að allir farþegar til Stokkhólms og Boston með Icelandair og farþegar til Alicante og Barselóna með Wow Air eiga inni 73 þúsund krónur í beinhörðum peningum samkvæmt Evrópulögum.
Svo má spyrja hvað sé í gangi þegar bæði flugfélögin aflýsa fleiri flugferðum daglega. Er verið að keyra vélarnar of hart? Er viðskiptamódelið að klikka? Er verið að taka sjénsa? Eða er bara eðlilegt að tvö lítil flugfélög felli niður fleiri flug á dag?
Spyr fólk sem ekki veit.







