Það gömul sannindi að án viðskiptavina er enginn bissness. Það líka gömul sannindi að það er ekki fyrr en eitthvað bjátar á sem raunverulega reynir á menn og fyrirtæki þeirra. Og þar fær markaðsmaður ársins einhverja feitustu falleinkunn sem fyrirfinnst.
Skönnuðum Twitter þetta kvöldið sem oftar. Eftir að Wow Air lokaði á viðskiptavini sína á fésbókinni er það eini vettvangurinn þar sem finna má kvartanir eða hól viðskiptavina Wow Air í garð fyrirtækisins.
Klárlega er því svo farið að þeir sem eru vondir eða fúlir yfir þjónustuskorti eru líklegri en hinir til að kvarta og það auðvitað á samfélagsmiðlum. Það ber sem sagt að taka kvörtunum þar með smá fyrirvara.
Að því sögðu er stórmerkilegur sá fjöldi viðskiptavina Wow Air sem hefur af ýmsum ástæðum ekki fengið það sem greitt var fyrir upphaflega en þarf að gera sér að góðu að bíða mánuðum saman eftir bótum frá milljarðamæringnum Mogensen.
Eitt slíkt dæmi má sjá hér að ofan. Flugi Wow Air frá Berlín í janúar aflýst með tilheyrandi veseni fyrir þá tæplega tvö hundruð sem áttu bókað í flugið. Tæpum FJÓRUM MÁNUÐUM síðar hefur ekki eyrir skilað sér í skaðabætur til þeirra sem hlut áttu að máli!!!
Komm on Skúli. Ertu ekki milljarðamæringur? Hvers vegna læturðu eigin viðskiptavini bíða mánuðum saman eftir bótum fyrir þitt eigið klúður? Færðu eitthvað út úr því að fíflast með viðskiptavini þína?
Eða ertu kannski orðinn blankur?







