Nokkrar af áætlunarflugferðum Wow Air þennan daginn á vef Keflavíkurflugvallar. Nákvæmlega ekkert að frétta. Skjáskot

Annaðhvort hefur flugfélagið Wow Air nánast hætt starfsemi eða að starfsmenn þess hafa ekki lengur nennu til að láta Keflavíkurflugvöll vita um komur og brottfarir.

Á brottfararvef Keflavíkurflugvallar má eðli máls samkvæmt sjá brottfarir véla frá Keflavík alla daga. Þær upplýsingar þó þeim annmörkum háð að það eru flugfélögin sjálf sem sjá um að senda inn upplýsingarnar. Annmörkum vegna þess að efalítið er hægt að svindla lítið eitt á komu- og brottfarartímum og láta flugfélagið líta betur út en ella væri raunin.

Það er þess vegna sem við teljum afar líklegt að sá sem á að senda Keflavíkurflugvelli upplýsingar frá Wow Air hafi verið veikur þennan daginn. Annaðhvort það eða að Wow Air er búið að fella niður FIMM áætlunarflug þennan daginn og er að reyna að fela þá staðreynd.

Í öllu falli eiga vélar flugfélagsins til Tel Aviv, Dublin, Varsjá, Dublin aftur og Parísar að vera löngu farnar í loftið en samkvæmt vef Keflavíkurflugvallar eru þær allar kyrrstæðar. Ekkert þýðir að reyna að finna umrædd flug á vef Flightradar eða FlightAware heldur. Þær eru ekki að fljúga þennan daginn samkvæmt upplýsingum þar á bæ.

Það getur þó varla verið að fimm vélar Wow Air hafi alls ekki flogið eftir áætlun þennan daginn eða hvað? Hefðu ekki fjölmiðlar landsins verið búnir að skýra frá stórveseni hjá Wow Air ef það væri raunin.

Mikið væri indælt ef Ísavía tæki nú völdin af flugfélögunum, setti sinn eigin starfsmann í að fylgjast með komu- og brottförum og setja inn „óháðar“ tölur um stundvísi. Plús auðvitað að vara fólk við á vef Keflavíkurflugvallar ef fjöldi áætlunarvéla frá sama flugfélagi fer alls ekki í loftið. Þið vitið, þetta sem kallast þjónusta.