Látum okkur nú sjá. Sé Kúbuferð draumurinn er óvitlaust að hoppa yfir á vef Vita og panta vikulanga ferð í nóvember næstkomandi fyrir 265 þúsund krónur á kjaft miðað við tvo saman. Ef þér finnst það fokdýrt eða nennir ekki að bíða svo lengi gætirðu gert verri hluti en skottast yfir á breskan vef TUI ferðaskrifstofunnar.

Nákvæmlega ekkert að þessum díl nema að fyrirvarinn er skammur. Skjáskot

Þar er nefninlega í gangi núna útsala á flugferðum til Kúbu frá London og þar finnst þegar þetta er skrifað flug til og frá niður í svo mikið sem 40 þúsund krónur á mann. Kannski 55 þúsund ef þú bætir við kostnaði við flug héðan til London.

Fyrirvarinn vissulega lítill en sé mið tekið af því að finna má príma gistingu bæði í Varadero og Havana niður í 50 þúsund krónur miðað við fjögurra stjörnu gistingu í tvær vikur í maí og júní er alveg kjörið að láta vaða. Það er jú aðeins sirka HELMINGI lægra verð en Vita er að bjóða okkur í nóvember næstkomandi og þá meðtalið fargjaldið til London og heim frá London.

Óvitlaust að skella sér á pakkann ef séffinn gefur frí með skömmum fyrirvara og þú þorir að treysta á sjálfa/-n þig erlendis. Ódýrari verður túr til Kúbu seint eða aldrei 😉