Þá sjaldan Icelandair gerir eitthvað rétt, fyrir aðra en hluthafa, er óhætt að klappa einu lofi í lófa eða svo. Það má nú. Jólagjafabréf flugfélagsins ekki lengur með heila símaskrá af takmörkunum og skilmálum.

Allt annað og betra. Engir skilmálar lengur á jólagjafabréfum Icelandair. Skjáskot

Allt annað og betra. Engir skilmálar lengur á jólagjafabréfum Icelandair. Skjáskot

Ritstjórn Fararheill aldrei verið aðdáendur „jólagjafabréfa“ Icelandair enda þar að okkar mati um verulega slæm kaup að ræða eins og lesa má um hér og hér og hér.

Eins og sjá má á meðfylgjandi skjáskoti hefur nú allt breyst. Nú eru jólagjafabréfin eingöngu kölluð „gjafabréf“ og gilda sem bein peningagreiðsla inn á allar ferðir flugfélagsins hvert sem er. Engar tímatakmarkanir og engar hömlur á lengd ferðar. Sem sagt: mikið mun betra en hefur verið í boði undanfarin átta ár eða svo ef litið er framhjá þeirri staðreynd að á flestum tilboðsferðum flugfélagsins eru hömlur og takmarkanir út í eitt.

Sannarlega ágætt skref hjá þessu risafyrirtæki í landinu. Það breytir hins vegar ekki því að gjafabréf almennt eru hörmungargjöf. Rannsóknir sýna að í 30 prósent tilvika gleymast þau nógu lengi til að verða úreld. Sem merkir í þessu tilfelli að ef þiggjandi brúkar ekki gjöfina innan tveggja ára varstu að gefa moldríku flugfélagi peninga fyrir ekkert. Þess utan eru sterkar líkur á að flugfargjöld hækki á næstunni og við það rýrnar gjafabréfið um leið.

En batnandi fólki…