Það var og. Ferðaskrifstofan Nazar sem boðið hefur upp á beinar ferðir til Tyrklands síðustu árin hefur gefist upp. Engar ferðir verða frá landinu á næsta ári.

Búið spil? Mjög líklega.
Nazar, í eigu ferðarisans TUI, er eina erlenda ferðaskrifstofan sem starfað hefur í landinu og bauð upp á nokkra nýja valkosti í beinu flugi héðan. Fyrirtækið fékk heilmikla auglýsingu hjá fjölmiðlum landsins þegar fyrirtækið hóf störf hér þrátt fyrir þá staðreynd að forstjórinn tæki fram að ekki væri ætlunin að bjóða lægra verð á ferðum fyrir Íslendinga. Engin samkeppni þykir móðins hjá fjölmiðlum landsins.
En hörmungartíð í Tyrklandi, eina áfangastað Nazar héðan, hefur ollið því að fyrirtækið hefur pakkað saman. Á vef Nazar er aðeins talað um að engar ferðir verði í boði sumarið 2017 en það þarf ekki mikil heilabrot til að vita að ástandið í Tyrklandi og þar í kring verður ekki leyst árið 2018. Við spáum því að Nazar sé endanlega hætt starfsemi hérlendis.
En það er ljóstýra samt fyrir Tyrklandselskendur. Nazar starfrækir ferðaskrifstofur á hinum Norðurlöndunum og þar eru ferðir oftar en ekki á mun lægra verði en þær buðust hérlendis. Sjálfsagt að nýta sér það ef áhugi er á.







