Þið verðið að afsaka okkur hjá Fararheill. Við héldum að Leifsstöð, byggð af fjármunum okkar skattgreiðenda, væri flugstöð en ekki skítleg verslunarmiðstöð sem lýgur og prettar sama fólk og byggði pleisið.

Ekki trúa neinu sem verslunareigendur í Leifsstöð troða upp á þig. Skjáskot
Það kemur fátt á óvart þar. Einkaaðilar hafa unun af því að láta skattgreiðendur punga út fyrir nægilegri aðstöðu til að geta svo prettað nákvæmlega sama fólkið. Ef það er hægt að níðast á fólki þá er yfirstjórn Isavía, sem rekur Leifsstöð, fremst í röðina.
Gott dæmi um þetta má sjá hér að neðan. Byrjum á að sýna þér skjáskot af vöru sem sögð er á SÉRSTÖKU JÓLATILBOÐSVERÐI og auðvitað TAX-FREE á vef Leifsstöðvar. Skoðaðu vel verðið á skítlegu kerti merktu Bláa lóninu. Skitið kerti með ósköp venjulegum kertaþráð kostar 3.950 krónur og það tollfrjálst!

Það virðist vel í lagt að greiða tæpar fjögur þúsund krónur fyrir kertadrasl sem kostar 40 krónur að framleiða í Kína. En þetta er jú Bláa lónið og þar er mönnum skítsama um allt nema feitan gróða.
En kíkjum augnablik á vef Bláa lónsins í Svartsengi. Hvað finnum við þá?

Merkilegt ekki satt? Sama kertadraslið og er á stórkostlegu jólatilboði í Leifsstöð á 3.950 krónur án allra skatta og gjalda kostar 3.920 krónur í þeirri okurbúllu sem Bláa lónið er.
Smekklegt.







