Aftur og ítrekað hefur hin síðari ár verið sýnt fram á takmarkanir allra þeirra öryggisráðstafana sem gripið hefur verið til í kjölfar hryðjuverkaárásanna í New York árið 2001. Einu gildir hvar gripið er niður eins og sést kannski best á þeim aðferðum sem sérþjálfaðir starfsmenn á bandarískum flugvöllum tileinka sér til að vinsa úr fanatíkus frá farþegum.

Hér leynast ýmsir líklegir hryðjuverkamenn ef marka má lista TSA.
Vefmiðillinn Firstlook komst yfir hluta þess lista sem flugvallarstarfsfólk á öllum bandarískum flugvöllum þarf að læra til að átta sig á hvaða fólk er líklegra til að fremja hryðjuverk en aðrir. Eins og með margt annað hjá Kananum er þessi listi í kjánalegri kantinum svo ekki sé meira sagt.
♥ Fólk sem geispar óeðlilega mikið
♥ Fólk sem kvartar mikið yfir allri öryggisgæslunni
♥ Fólk sem ræskir sig umfram það sem eðlilegt getur talist
♥ Mjög starandi augu
♥ Undarlegur klæðnaður
♥ Fólk sem blístrar í öryggisröðinni
♥ Fólk sem horfir að mestu niður
♥ Fólk sem snyrtir sig sýknt og heilagt
♥ Mikið og endurtekið lófanudd
Burtséð frá þeirri staðreynd að fólkið sem starfar við það eitt að vinsa úr hugsanlega hryðjuverkamenn er venjulegt flugvallarstarfsfólk á lágmarkslaunum er margt þarna sem orkar tvímælis.
Fólk sem ræskir sig mikið gæti þjáðst af bakflæði sem er mjög algengur sjúkdómur. Fólk klæðir sig misjafnlega og fatasmekkur getur á engan hátt gefið fyrirheit um illan ásetning. Starandi augu og geispar geta átt við um þreytt fólk eða syfjað. Það er auðvelt að verða þreytt í löngum öryggisröðum á stærri flugvöllum og mörg áætlunarflug fara mjög snemma morguns. Og svo framvegis og svo framvegis.
Billjarðar króna í öryggisgæslu og þetta eru reglurnar fimmtán árum síðar!!! Galið.







