Þeim er nokkur vorkunn þeim þúsundum sem ætla til og frá Alicante á Spáni næsta sumarið. Flugtími þeirra tveggja flugfélaga sem þangað fljúga héðan er meira og minna hörmulegur.

Ekki spennandi að fljúga til og frá Alicante í sumar.

Ekki spennandi að fljúga til og frá Alicante í sumar.

Þar um að ræða Primera Air og Wow Air sem bjóða okkur beint flug eins og undanfarin ár en sem kunnugt er eiga hundruðir landsmanna fasteignir þar í kring og staðurinn vinsæll meðal sóldýrkenda og golfunnenda.

Við skoðun Fararheill á fargjöldum og flugtímum næsta sumar kemur í ljós að fargjöld til Alicante hafa hækkað nokkuð milli ára. Í júlímánuði er ekki komist fram og aftur undir 50 þúsund krónum og reyndar hoppar fargjald fram og aftur yfir 60 þúsund krónur á mann með eina tösku meðferðis. Vekur reyndar athygli að flugið kostar nánast það sama hjá báðum flugfélögum og sömuleiðis er töskugjaldið nánast hið sama.

Sama uppi á teningnum í ágúst. Þá líka munar innan við tvö þúsund krónum á lægsta fargjaldi Primera Air annars vegar og Wow Air hins vegar. Verðið aftur kringum 60 þúsund á haus með einni tösku hjá báðum aðilum. Fákeppni eða verðsamráð?

Öllu verri er þó flugtíminn og ekki hvað síst þegar haft er í huga að Alicante er mjög vinsæll hjá barnafjölskyldum.. Wow Air flýgur fimm sinnum í viku til og frá. Brottför héðan klukkan 15.10 og lending 21.50 að kvöldi. Þeir sem ekki gista í Alicanteborg sjálfri eða næsta nágrenni eru ekki komnir á áfangastað sinn fyrr en laust fyrir miðnætti hvort sem sá staður er Torrevieja eða Benidorm.

Flugið út þó hrein hátíð miðað við heimflug Wow Air. Lagt er upp frá Alicante klukkan 22.50 í allar ferðir. Lending í Keflavík um miðja nótt eða svo rétt fyrir klukkan tvö eftir miðnætti. Fólk komið til síns heima milli þrjú og fjögur um nóttina. Afar spennandi tími.

Hlutirnir örlítið betri hjá Primera Air en ekki mikið þó. Þar flogið fjórum sinnum vikulega og einu sinni í viku er í boði að leggja í hann frá Keflavík laust eftir klukkan sex um morguninn. Það snemmt með afbrigðum en fólk allavega komið til Alicante laust upp úr hádegi. Hinir þurfa að sætta sig við komu til Alicante hálfeitt eftir miðnætti og því ekki komnir í hótelrúmið fyrr en hálfþrjú til þrjú um nótt í besta falli.

Að sama skapi er ein ferð af fjórum í viku sem fer frá Alicante laust eftir hádegið og lending í Keflavík síðdegis. Aðrir verða að gera sér að góðu að staulast út úr Leifsstöð upp úr klukkan fjögur um nótt.

Þetta er því eins óspennandi og framast er hægt að hafa flugtíma óspennandi og hrein martröð fyrir fólk með ungabörn eða þreytt smáfólk með í för. Ekki einu sinni lággjaldaflugfélagi á borð við Ryanair, sem þekkt er fyrir hrapallega þjónustu við viðskiptavini, dettur í hug að bjóða flug sem lendir um miðja nótt. Þetta er nánast séríslenskt fyrirbrigði.