Að frátöldum siglingum með Norrænu frá Danmörku gefst Íslendingum ekki oft kostur á ljúfum siglingum til föðurlandsins. Ein slík ferð er þó í boði í vor.

Ágætt skip og dágóður túr frá Hamborg til Reykjavíkur í vor. Mynd Iceland Pro Cruises
Iceland Pro Cruises heitir fyrirtæki sem sérhæfir sig í siglingum til Íslands og Grænlands frá Evrópu en það fyrirtæki er sagt að hluta í íslenskri eigu á vef þess.
Ferðin sem um ræðir hefst í Hamborg þann 11. maí en þaðan liggur leiðin fyrst til Bretlands. Þá siglt til Orkneyja, Hjaltlandseyja og Færeyja og fæti stigið á fast land í hvert sinn um tíma. Þaðan liggur leiðin til Seyðisfjarðar og svo norður og vestur fyrir landið áður en för lýkur í Reykjavík þann 24. maí. Víða stoppað á þeirri leið líka.
Þetta virðist hin ágætasta ferð. Skipið traust, stopp í landi drjúg og víðast í boði að fara skemmri túra gegn aukagjaldi. Þá er allur matur um borð innifalinn í verðinu og allir klefar með sjávarsýn þó í misgóðum mæli sé.
Verð fyrir þessa siglingu er lægst 280 þúsund krónur á mann en þar aðeins um þriggja manna káetur að ræða og raunverð því 840 þúsund fyrir alla þrjá aðila. Ódýrasta káetan fyrir tvo kostar það sama. Inn í verðið vantar auðvitað líka að koma sér og sínum til Hamborgar sé fólk ekki á staðnum.
Hreint ekki gefið og reyndar hægt að finna aðrar ekki ósvipaðar siglingar á lægra verði ef vel er leitað. En á móti kemur að þetta er nýstárleg leið og Ísland frá sjó er töluvert frábrugðið Íslandi af landi.







