Icelandair er aðeins að litlum hluta keppinautur Wow Air og verður það ekki til langframa segir Skúli Mogensen eigandi Wow Air. Til þess sé Icelandair of gamaldags.

Fjöldi nýrra áfangastaða Wow Air á næsta ári. Mynd Wow Air
Skúli lætur ýmislegt flakka í viðtali við bandaríska dagblaðið USA Today þennan daginn en fyrirtækið hóf í dag sölu flugferða til og frá San Francisco og Los Angeles og hafa afar lág fargjöld vakið töluverða athygli vestanhafs.
Í viðtalinu kemur meðal annars fram að einn áfangastaður til gæti bæst við leiðakerfi Wow Air í viðbót við þá fjóra nýju staði vestanhafs sem Wow Air flýgur til á þessu ári: Toronto, Montreal, Los Angeles og San Francisco. Í ofanálag segir Skúli að fyrirtækið muni bjóða „fjölda“ nýrra áfangastaða árið 2017.
Aðspurður um samkeppni við Icelandair um tengiflug gegnum Ísland segist Skúli hafa litlar áhyggjur. Icelandair sé gamall risi sem keyri á gömlu þreyttu klassísku viðskiptamódeli. Skúli hafi litlar áhyggjur af þeirri samkeppni og alls engar til lengri tíma litið.







