Eitthvað mikið hefur komið fyrir hjá Icelandair. Flugfélagið aflýsti flugi FI 595 frá Madríd á Spáni en vélin atarna átti að lenda í Keflavík laust eftir miðnætti þann 13. október. Hún snerti svo loks íslenska jörð klukkan sex síðdegis tæplega sautján stundum á eftir áætlun.

Ekki algengt að Icelandair aflýsi flugi en það gerðist þó í dag. Mynd Woodys Aeroimages
Kannski er minnistap að gera vart við sig hjá ritstjórn en við munum ekki eftir að flugfélagið hafi gefið neina viðvörun eða upplýsingar vegna þessa á vef sínum. Aflýsing er æði alvarleg aðgerð og bendir til bilunar. Það þó aðeins getgátur meðan Icelandair situr eins og ormur á gulli á upplýsingum.
Það sem liggur þó ljóst fyrir er að farþegar Icelandair í þessu flugi eiga inni vænan seðil í bætur fyrir tafirnar. Þær skjaga í 50 þúsund krónur á mann þegar þetta er skrifað miðað við gengið en sem fyrr þarf að bera sig eftir bæði björginni og bótunum. Leggja inn kröfu hjá Samgöngustofu og bíða niðurstöðu.







