L andslag væri lítils virði ef það héti ekki neitt skrifaði Tómas Guðmundsson eftirminnilega í ljóði sínu Fjallganga fyrir margt löngu. Orð að sönnu að örnefnin eru nauðsynleg og veita bæði ánægju og fyllingu hvert sem farið er.
Nema hvað sum örnefni eru vinsælli en önnur og hvort sem menn trúa því eður ei eru til fjöll í einum fimm löndum heims sem heita Sykurtoppur. Þó ekki á íslensku.
Það er þó með þeim formerkjum að frægast þeirra allra, Pão de Açúcar í Ríó de Janeiro í Brasilíu, heitir í orðsins fyllstu Sykurhleifur en ekki Sykurtoppur þó þekktari sé hann undir síðarnefnda nafninu og reyndar auglýstur þannig hjá þarlendum ferðaskrifstofum.
Sykurtoppa má líka finna á nágrannaríkjum okkar Grænlandi og Noregi og að auki í Þýskalandi og Georgíu.
Þú mátt reyndar leita lengi að sykurtopp þeirra Grænlendinga. Það er ekki einu sinni fjall eða tindur heldur bær og aðeins Danir kalla bæinn Maniitsoq Sykurtopp.





