Icelandair gæti að líkindum haft eina varaþotu til taks í Keflavík á næsta ári ef marka má forsvarsmann flugfélagsins í Bretlandi. Sú vél á meðal annars að bæta stundvísi véla Icelandair til Skotlands sem hefur verið afleit í áraraðir.

Miklar tafir verið á flugi Icelandari til Glasgow en það horfir til betri vegar.Mynd Woodys Aeroimages
Icelandair er í hópi svörtu sauðanna í Glasgow. Þriðjungur flugferða félagsins til Glasgow hafa verið langt á eftir áætlun og meðaltöf síðasta árið rétt tæpur hálftími. Tafir Icelandair þær mestu hjá nokkru flugfélagi sem notaði Glasgow-flugvöll árið 2014.
En í samtali við skoska blaðið Scotsman segir Andrés Jónsson, framkvæmdastjóri Icelandair í Bretlandi, að vonir standi til að ráða bót á ítrekuðum töfum með aukavél sem staðsett verður í Keflavík í viðbragðsstöðu ef vélar Icelandair frá Bandaríkjunum eru langt á eftir áætlun. Það hefur keðjuverkun í för með sér því þær vélar halda svo áfram til Evrópu og þar á meðal Glasgow.
Sé þetta rétt er um framför að ræða. Flugfélagið hefur stækkað það mikið að varavél er nánast orðin nauðsynleg til að henda í verkefni með litlum fyrirvara ef tafir verða miklar eða vélar bila. En það er dýrt að hafa vél á kantinum og reyndar vandséð hvernig hægt er að standast þá freistingu að bæta við ferð eða flugleið í stað þess að láta vél safna ryki í Keflavík.







