Ágústmánuður ekki allur en þeir sem áhuga hafa á aðventuferðum til Evrópu fyrir næstu jól eru samt sem áður að missa af lestinni. Þegar er uppselt í þær nokkrar.

Aðventuhátíðir fara fram í velflestum borgum Evrópu og úr nægu að velja.
Snjókorn svífa létt til jarðar, barnakórar syngja jólalög, vinalegt sölufólk í skreyttum básum, ristaðar hnetur, gluhwein í glasi og heimamenn tiltölulega slakir á röltinu í sínu fínasta pússi.
Já, það er ekki skrýtið að lífið sé dálítið yndislegt á slíkum stundum í borgum sem allar eiga mikla og langa sögu aftur í aldir. Slíka stemmningu er nefninlega ekki hægt að finna á Íslandi og verður kannski aldrei. Til þess erum við Íslendingar of stressaðir og veðurfar hér í nóvember og desember öllu lakara almennt en í Mið-Evrópu.
Þess vegna er kannski ekkert skrýtið þó síðustu sætin séu að seljast hjá innlendum ferðaskrifstofum þó enn séu nokkrir mánuðir til stefnu. Önnur af tveimur aðventuferðum Heimsferða er uppseld. Fjórar aðventuferðir Bændaferða fullbókaðar og örfá sæti laus í tvær aðrar. Sömuleiðis komast ekki fleiri með í aðventuferðir Vita, Wow Air né Úrval Útsýn.
Það er sem sagt fátt eitt eftir bitastætt og hraða þarf að hafa á ef draumurinn er endilega að fara með stórum hóp Íslendinga erlendis fyrir jólahátíðina. Hinir sem kjósa að ferðast einir eða aðeins með maka eða fjölskyldu geta þó andað rólega. Nógur tími til að bóka flug og gistingu enda úrvalið mikið.







