Ferðaskrifstofan Vita, dótturfyrirtæki Icelandair, auglýsir grimmt vikulanga Kúbuferð sína í nóvember næstkomandi. Lágmarksverð í þá reisu er 559 þúsund krónur á par. Norska ferðaskrifstofan Ving er einnig að bjóða Kúbuferð á nákvæmlega sama tíma en í tvær vikur í stað einnar og á betra hóteli. Verð í báðar ferðir er hið sama.

Ekki amalegt á Varadero. En sannarlega mismunandi hvað hlutirnir kosta.
Í Kúbuferð Norðmanna er flugið plús tvær vikur allt innifalið á fimm stjörnu Melia Marina Varadero og brottför frá Osló þann 23. nóvember í beinu flugi út. Verð miðað við gengi dagsins 550.130 krónur fyrir tvo saman.
Kúbuferð Vita samanstendur af fluginu 23. nóvember plús einni viku á fjögurra stjörnu Melia Varadero með öllu inniföldu sé miðað við ódýrasta kost í boði á vef Vita. Millilent er á leiðinni út og heim. Verð fyrir tvo saman samtals 559.800 krónur.
Með öðrum orðum: þú færð heila viku fría hjá þeim norsku miðað við Vita. Og nota bene, Ving býður sama pakka á enn lægra verði á öðrum dagsetningum.
Oft áður hefur Fararheill skammast út í Vita fyrir þessar vikuferðir sínar. Flugið til Kúbu tekur tíu stundir sem og heimleiðin og það klippist fljótt af þeim sjö sólarhringum sem ferðin stendur. Fólk vart búið að koma sér fyrir áður en komið er að heimferð.
Þessu hafa forráðamenn ferðaskrifstofunnar Ving, dótturfyrirtækis Thomas Cook, fyrir löngu áttað sig á. Engar vikuferðir til Kúbu eru þar í boði og reyndar vandfundnar vikuferðir til Karíbahafsins alls. Það er heilbrigð skynsemi að slíkt er allt of stutt.
Allavega, ef þú ert sama sinnis og ert að deyja eftir Kúbuferð áður en Kaninn valtar yfir allt og alla þá ertu sennilega mun betur kominn bæði fjárhagslega og ánægjulega með því að bóka ferð Ving og kaupa svo flug til Oslóar og heim aftur að ferð lokinni. Til Oslóar er nefninlega komist æði ódýrt almennt og ekki hvað síst í nóvember.
[alert type=success]Á bókunarvef Ving er aðeins í boði að bóka frá Svíþjóð, Noregi eða Danmörku. Það þýðir þó ekki að við getum ekki keypt þar ferð líka. Af því hefur Fararheill reynslu. Nægir oftast að senda þeim póst vegna málsins en svo er líka hægt að nýta einhvern þeirra þúsunda ættingja og vina sem búsettir eru í þessum löndum[/alert]Allt um ferð Ving hér og hér um ferð Vita. Hér má fræðast nánar um Varadero.









