Ferðaskrifstofan Nazar er að gera vel fyrir Akureyringa þessa dagana. Allar ferðir Nazar frá þessum höfuðstað Norðurlands eru á útsölu og þar lofað allt að 75 prósenta afslætti.

Afslátturinn sem ekki finnst. En fín afsláttarkjör samt á mörgum ferða Nazar næstu vikurnar. Skjáskot
Ekkert að slíkum afslætti og Fararheill leyfir sér að fullyrða að sjaldan eða aldrei áður hefur ferðaskrifstofa hér á landi boðið jafn drjúga afslætti á ferðum. Þá má enginn Reykvíkingur hlaupa í fýlu þó þessi fínu afsláttarkjör gildi aðeins um ferðir frá Akureyri. Það er jú ekki eins og landsbyggðafólk hafi ekki þurft að greiða töluvert aukalega til að fljúga erlendis frá Keflavík frá örófi alda. Ekki hvað síst þegar haft er í huga að Akureyrarbær niðurgreiðir ferðir Nazar að hluta samkvæmt upplýsingum Fararheill.
Fararheill gerði heiðarlega tilraun til að finna ferðir þær sem sagðar eru á 75% afslætti en án árangurs. Þó skal ekki útilokað að þau finnist en á vef Nazar er ekkert verið að hafa fyrir að benda á þær ferðir. Gilda það tilboð um ákveðnar dagsetningar? Ákveðna gististaði, ákveðinn fjölda vikna eða fjölskyldustærð? Það væri ágætt að vita fyrir viðskiptavini. En hér er sama lítilsvirðingin fyrir tíma fólks og víðast hvar annars staðar. Eyðið tíma ykkar til að leita bara.
Himinn og haf er milli þess sem við finnum og þessa auglýsta 75% afsláttar. Mesti afsláttur sem við finnum nemur 38% á vikuferð þann 7. október þar sem gist er á Pegasus Resort. Þar fæst ferðin nú á 129.599 krónur en hefðbundið verð sagt vera 179.000 krónur á hvern fullorðinn. Hafi okkur verið rétt kennt í grunnskóla kemur það út sem 38 prósenta afsláttur. Víðsfjarri 75 prósentunum samt og væri ekki í fyrsta sinn sem fyrirtæki ýkja afsláttarprósentu sína í auglýsingum. Engu að síður ekkert að afsláttarferðum í sólina áður en vetur konungur fer að blása að ráði.







