Þennan daginn hefur nokkuð verið fjallað um hörmulega framkomu lettneska flugfélagsins Primera Air við farþega sína sem áttu flug frá Tenerife til Íslands.

Fátt bendir til annars en margir eigi ágætar bætur inni hjá Primera Air

Fátt bendir til annars en margir eigi ágætar bætur inni hjá Primera Air

Farþegarnir þurftu að gera sér að góðu að millilenda vegna eldsneytisskorts á Írlandi áður en í ljós kom að áhöfnin var komin yfir á tíma og allir sendir að endingu á hótel með tilheyrandi vandræðum og veseni. Vélin lenti loks á Íslandinu góða undir kvöld tæplega sólarhring á eftir áætlun.

Margt er á huldu um málið þó fjölmiðlar hafi fjallað mikið um þetta í dag. Hvers vegna þurfti vél Primera aukaeldsneyti vegna þyngdar og þess vegna lent á afdalavelli á Írlandi? Það er jú ekki eins og Primera hafi ekki flogið þessa sömu leið um áraraðir og hingað til stopp á annars ágætu Írlandi ekki verið hefðin.

Merkilegt líka er einnig að engum fjölmiðlamanni datt í hug að hringja í eigandann, Andra Má Ingólfsson, og fá skýringar. Enginn fjölmiðill telur heldur ástæðu til að benda á að hver farþegi í þessu flugi á að öllum líkindum inni rúmar 87 þúsund krónur hjá flugfélaginu. Töfin langa hefur því farið langleiðina með að greiða fyrir fríið.

Það er ekki flókið að komast að þeirri niðurstöðu. Tefjist flug um meira en fimm stundir og sé vegalengd flugs yfir 3.500 kílómetra á viðkomandi rétt á hámarksbótum eða 600 evrur sem eru 87 þúsund krónur miðað við gengi dagsins. Vegalengdin milli Tenerife og Keflavíkur er 4015 kílómetrar.

Svo annað mál kannski að innheimta og dæmin sýna að Primera Air greiðir engar bætur nema í fulla hnefa. Það verða þeir þó að gera fyrr en síðar en þó aðeins ef farþegar senda erindi þess efnis til Samgöngustofu og fara fram á bætur. Miðað við það sem fram hefur komið í málinu á Primera sér engar málsbætur.