Ótrúlega margir innlendingar halda að aðeins eitt flugfélag bjóði flug héðan til Berlínar og það félag heiti Wow Air. Svo er ekki því Airberlin býður þann rúnt líka og samkvæmt úttekt Fararheill að mestu að bjóða betur þennan veturinn sé ein taska með í för.

Virk samkeppni til Berlínar samkvæmt úttekt Fararheill. Samsett mynd

Virk samkeppni til Berlínar samkvæmt úttekt Fararheill. Samsett mynd

Þau fjölmörgu erlendu flugfélög sem hingað til lands fljúga reglulega gera lítið eða ekkert af því að auglýsa hér innanlands. Sem eðlilega hefur í för með sér að þau gleymast þegar halda skal út í víking.

Þau eru reyndar þrjú flugfélögin sem fljúga milli Keflavíkur og Berlínar. Það gerir Germanwings líka en ólíkt Wow Air og Airberlin er hið fyrstnefnda aðeins að fljúga að sumarlagi og aðeins inn í september.

Wow Air er reyndar að standa sig ágætlega í samkeppninni. Ekki munar stórum upphæðum á fargjöldum hins íslenska og þess þýska þegar við leituðum uppi lægsta fargjald í boði hjá báðum næstu mánuði. Wow Air meira að segja að bjóða lægsta verð í októbermánuði.

* Úttekt gerð samtímis á vefum beggja aðila kl. 11:00 þann 27. ágúst 2015. Tösku bætt við fargjald Wow Air og aðeins skoðaðir Fly-Deal pakkar Airberlin þar sem 23 kílóa taska er með í för. Hafa skal í huga að verðbreytingar eru örar hjá flugfélögunum.