Fréttastofa ríkisins birtir ágæta grein þennan daginn um fáránlegan kostnað innlends flugfélags til Grænlands og Færeyja, okkar næstu nágranna, og ber saman við aðrar ferðir miklu lengra út í heim sem engu að síður eru miklu ódýrari. Þar er fréttastofan samt langt aftan á merinni.

Verðhækkanir í flugi til Grænlands og Færeyja hafa verið miklar undanfarið. Mynd Aero Icarus

Verðhækkanir í flugi til Grænlands og Færeyja hafa verið miklar undanfarið. Mynd Aero Icarus

Fararheill hefur fjallað um þetta einum sex sinnum á undanförnum árum og ekki einu sinni hefur innlendum fjölmiðli dottið í hug að elta eða fjalla um að Flugfélag Íslands okrar eins og mafíósi frá Corleone á flugferðum sínum til næstu nágrannalanda.

Hér má sjá eina grein okkar frá 2011. Hér má sjá eina grein okkar frá 2013 og hér má sjá enn eina grein okkar og hér eina enn.

Engum innlendum fjölmiðli hefur dottið í hug að rannsaka hvers vegna helmings lækkun á eldsneytisverði um mitt ár 2014 hefur ALDREI skilað sér í innanlandsflugi og þaðan af síður í flugi til Grænlands eða Færeyja. Nema jú ef ferðast er með hinu færeyska Atlantic Airways. Þá er 50 þúsund króna lægra verð en hjá hinu íslenska flugfélagi.

Hér er frétt RÚV og hér er tilvitnun í einhvern markaðsmann hjá Flugfélagi Íslands. Markaðsmenn hafa það að lifibrauði að selja vöru með öllum tiltækum ráðum:

Ingi Þór Guðmundsson, forstöðumaður sölu- og markaðssviðs Flugfélags Íslands, segir að eitt af því sem skýri verðmuninn sé það að auðveldara sé að dreifa kostnaði á hvern farþega í stórum flugvélum en smáum. Aðspurður hvort það hefði áhrif að samkeppnin væri misjafnlega mikil á þessum leiðum sagði Ingi Þór að verð Flugfélags Íslands væru mjög svipuð og gengur og gerist á markaðnum. Að auki hefðu há lendingargjöld áhrif á verð. Þannig gætu þau verið 20 til 25 þúsund krónur á Grænlandi, sem sé stór hluti af heildarverðinu.“

Ætlar einhver að trúa því að lendingargjöld í krummaskuðum Grænlands þar sem þjónusta er lítil eða engin og einn maður á vakt í turninum séu hærri en gerist og gengur á Heathrow, Charles De Gaulle eða Fiumicino í Róm? Og ætlar einhver að trúa að enginn feitur afsláttur sé á lendingargjöldum hjá flugfélagi sem flýgur daglega til margra staða á Grænlandi? Enginn skattaafsláttur eða gjaldaniðurfelling? Og er eini samkeppnisaðilinn, Air Greenland, ekki í samstarfi við móðurfélag Flugfélags Íslands?

Þetta heitir bara einokun og græðgi. Punktur!