Flugfélagið SAS auglýsir á heimasíðu sinni flug milli Reykjavíkur og Beijing í Kína og lægsta mögulega verð fram og til baka frá aðeins 104.600 krónum. Það er bullandi gott verð fyrir rúmlega 20 stunda flug í heildina. Hið sama verður ekki sagt um tæplega sjö stunda flug Flugfélags Íslands fram og til baka til Nuuk á Grænlandi sem er ívið dýrari ferð.

Margt heillar við að heimsækja Nuuk á Grænlandi en hundrað þúsund króna kostnaður bara við flugið og það í þröngri rellu er heldur gróft. Mynd Rune Christiansen
Nuuk á Grænlandi er heillandi staður og til þessa stórmerkilega nágrannaríkis okkar ættu Íslendingar að gera miklu meira af því að ferðast. En Nuuk, og flestir aðrir staðir á Grænlandi, blikna sennilega í hugum flestra samanborið við Kínamúrinn, Forboðnu borgina og annað það stórmerkilegt sem sjá má í því mikla ríki Kína.
Leit á vef Flugfélags Íslands sem flýgur beint til nokkurra áfangastaða á Grænlandi beint frá Reykjavíkurflugvelli leiðir í ljós að til Grænlands kemst enginn nema fuglinn fljúgandi undir hundrað þúsund krónum í sumar.
Ætli fólk sér þannig að kíkja til Nuuk frá 2. júlí til 6. júlí í sumar fæst nú bónussæti á 44.080 krónur til Grænlands en heim aftur eru aðeins svokölluð ferðasæti í boði og það kostar litlar 66.860 krónur. Samtals kostnaður er 110.940 krónur. Sömuleiðis er kostnaðurinn svipaður ætli fólk í júní í litla heimsókn. Ferð frá 20. júní til 25. júní kostar báðar leiðir á þessari stundu 110.940 krónur.
Sama gildir að mestu um flug til Narsarsuaq. Þangað er heldur ekki komist undir hundrað þúsund krónum á mann og fannst þó svokallað nettilboð aðra leiðina við athugun ritstjórnar Fararheill.
Reyndar er verðlag á öðrum ferðum til Grænlands eilítið betra. Á þessari stundu er komist til Kulusuk, sem er öllu styttra flug, fram og tilbaka í júlí fyrir tæplega 80 þúsund krónur.
* Miðað við verð á vef Flugfélags Íslands 25. apríl klukkan 10.
[polldaddy poll=“6170408″]






