Farþegar í yfirvigt, fitubollur, ættu að greiða hærra verð fyrir flugmiðann en aðrir. Þessu er meirihluti karlmanna sammála samkvæmt nýrri breskri úttekt en sú kemur rétt á hæla ástralskrar könnunar þar sem heil 75 prósent þátttakenda reyndust sama sinnis.

Fólk þarf að greiða aukalega fyrir of þungan farangur en hvað með þá sem sjálfir eru of þungir?

Fólk þarf að greiða aukalega fyrir of þungan farangur en hvað með þá sem sjálfir eru of þungir?

Sérstakur fituskattur á flugfarþega hefur nokkuð verið til umræðu síðustu árin og sérstaklega í kjölfar þess að lágfargjaldaflugfélagið Ryanair íhugar að setja á slíkan skatt í framtíðinni. Rökin að hluta þau sömu og vegna farangurs; að þyngri farangur gerir vélina þyngri og því eyðir hún meira eldsneyti en ella. Ekki minna máli skiptir þó að í flestum hefðbundum vélum taka feitlagnir mikið pláss í sætum og þrengja þannig að fólki í næstu sætum við.

Vefmiðillinn HolidayExtras.com gerði úttekt meðal breskra ferðamanna hvort fólk væri almennt samþykkt sérstökum fituskatti á flugfarþega og í ljós kemur að 48 prósent allra svara því játandi. Feitlagnir eigi að greiða meira en þeir sem mjórri eru. Hækkar talan í 51 prósent séu karlmenn spurðir sérstaklega.

Vestur í Bandaríkjunum hefur komið til þess að verulega þungu fólki sé meinað að stíga um borð í vélina en það þó ekki vegna offitu per se heldur meira öryggis vegna. Mjög þungir og stórir einstaklingar hreyfa sig hægt og geta sumir ekki komist auðveldlega út um neyðarútganga gerist þess þörf.