Tíðindi

Ylvolgt í heita pottinum

  25/04/2012No Comments

Séu sjóðir ekki ýkja gildir en hugur leitar út á við sýknt og heilagt er þjóðráð að dýfa táslu endrum og sinnum ofan í heita pott Iceland Express. Hann er ylvolgur þessa stundina og þar má finna ein fjórtán tilboð á flugi til og frá Íslandi.

Og þá voru þau fjórtán. Töluvert af ágætum tilboðum í heita potti Iceland Express þessa stundina

Ekki hefur farið fram hjá neinum sem með fylgist að flugfargjöld almennt á Íslandi og víðar hafa hækkað verulega undanfarin misseri. Þá er aldrei mikilvægara að fylgjast með tilboðum hvers konar og eiga nægilega stóran seðil á bók til að panta slíkt um leið og býðst.

Heiti pottur Iceland Express hefur tekið þeim breytingum upp á síðkastið að tilboðin þar gilda ekki aðeins um flug félagsins næstu daga eða viku eins og áður var heldur er nú hægt að kaupa fargjald á tilboðsverði fram til júní.

Það gildir til dæmis um Edinborg en þangað er nú komist aðra leiðina um miðjan júní, sem er fyrirtaks tími, fyrir aðeins 12.900 krónur með sköttum og gjöldum. Sömuleiðis er Berlín í boði aðra leiðina um miðjan maí fyrir 12.700 krónur.

Græddur er geymdur eyrir segja fróðleiksmenn úr bankageiranum og geti fólk almennt gripið gæs er hægt að spara allt að tíu þúsund krónum frá almennu fargjaldi með því að fylgjast grannt með heita pottinum og öðrum sértilboðum allra flugfélaganna.

Heiti potturinn í þráðbeinni hér.