Tíðindi

Empire State ekki hæst mikið lengur

  25/04/2012No Comments

Segja má að það sé að verða allra síðasti sjéns að fara upp í hæstu byggingu í New York í Bandaríkjunum… áður en hún missir þann heiður sinn. Ráð er gert fyrir að strax í næstu viku verði hin nýi One World Trade Center, sem rís þar sem World Trade turnarnir voru staðsettir, orðinn hærri en Empire State sem hefur verið hæsta bygging borgarinnar frá september 2001.

Smíði One World Trade Tower gengur vel og í næstu viku verður byggingin orðin sú hæsta í New York borg

Empire State byggingin var áratugum saman, áður en byggingu World Trade Center turnanna lauk, hæsta byggingin í New York en hæð turnsins að loftnetinu sem bygginguna prýðir 471 metri. Það dró að milljónir manna árlega enda gaf ekkert eins góða sýn yfir borgina en útsýnispallur Empire State.

Tvíburaturnarnir World Trade Center, byggðir 1972, voru báðir hærri en Empire State og því missti sá síðarnefndi þann heiður fram til ársins 2001 þegar hryðjuverkaárásirnar voru gerðar.

En nú er svo komið í byggingu One World Trade Center að hæð hans mun ná 471 metra og það strax í næstu viku. Alls verður nýi turninn 541 metri í heildina en byggingu hans mun þó ekki ljúka fyrr en seint á næsta ári.