Líkt og raunin er með marga belgíska bæi og borgir er mesti glansinn farinn af smábænum Spa í suðausturhluta landsins en bærinn var á sínum tíma mekka jarðar fyrir jarðböð og heilsulindir og væru menn þar vel settir hefði verið hægt á sínum tíma að fá einkaleyfi á nafninu.
Það breytir ekki því að þeir fáu sem enn reka fyrirtæki í þeim geiranum í bænum heimta fúlgur fjár fyrir dúllerí við viðskiptavini sína sem margir hverjir koma enn langt að til að prófa herlegheitin. Gróflega er slíkt um helmingi dýrara en hér á Íslandi.
Reyndar hefur bærinn náðst að halda sér á korti heimsins gegnum Formúlu 1 keppnina en keppnisbraut ein góð er í námunda við bæinn. Er það ágæt ástæða til að rölta í bænum í nokkra tíma sem ætti að vera nægjanlegt til að sjá allt markvert.






