Það er krökkt af krókódílum í Góa á Indlandi en hingað til hafa þeir ekki gert að venju sinni að rölta um á ströndinni mikið. Þeir halda sig í fenjum inni í landinu. Þangað til núna.

Þetta ferlíki var á leið í sjóinn við Góa þegar heimamaður var á morgungöngu fyrr í vikunni. Mynd Facebook/Nilesh Bagkar

Þetta ferlíki var á leið í sjóinn við Góa þegar heimamaður var á morgungöngu fyrr í vikunni. Mynd Facebook/Nilesh Bagkar

Töluvert írafár varð meðal þúsunda ferðamanna á hinni afar ljúfu og vinsælu strönd Góa héraðs í vikunni þegar heimamaður einn rakst á krókódíl í flæðarmálinu á göngu snemma morguns. Skipti engum togum að blöð og miðlar tóku upp málið enda Góa einn allra vinsælasti áfangstaður ferðamanna í landinu og þar hafa nánast aldrei sést krókódílar við strandlengjuna áður.

Myndin talar sínu máli en ferðamálayfirvöld í héraðinu standa þó fast á því að hér sé um hrekk að ræða. Krókódíllinn á myndinni sé ekki ekta heldur aðeins gervikrókódíll frá samkeppnisaðila.

Ekki hægt að útiloka að svo sé en miðað við myndina virðist króksi nokkuð líflegur og eðlilegur. Og þar sem krókódílar finnast sannarlega í velflestum fenjum Góa eru sennilega meiri líkur en minni að hér sé um raunverulegt eintak að ræða. Sem gerir strandlífið aðeins meira spennandi en ella en kannski of spennandi fyrir suma.