Sá sem ætlar sér fram og aftur til Alicante yfir sumartímann þarf yfir leitt að kafa djúpt í veskið enda flug þangað ekki gefins á annatíma. En eins og skratti úr sauðalegg eru Vitaferðir, af öllum, að bjóða fínasta flugtilboð til spænsku borgarinnar.
Þetta kemur örlítið á óvart. Vita ferðir hafa hingað til ekki verið í forystu þeirra sem lækka verð almennilega þó skammt sé til brottfarar. Nú selur ferðaskrifstofan hins vegar síðustu tíu sætin fram og aftur til Alicante á 29.900 krónur á haus eða á 14.950 krónur hvora leið. Það er æði gott.
Mínusinn sá að fljúga verður strax þann 26. ágúst og aðeins er um vikudvöl að ræða enda heimflugið þann 2. september. Þá gleymir ferðaskrifstofan alfarið að tiltaka hvort farangur er innifalinn eður ei sem er döpur þjónusta.
Það gildir þó einu. Flug með Wow Air án farangurs 26. ágúst til 2. september samkvæmt leit Fararheill kostar að lágmarki tæpar 46 þúsund krónur á mann eða sextán þúsund krónum hærra verð en Vita býður.
Engar áhyggjur af því að finna hótel við hæfi. Á hótelbókunarvél Fararheill hér að neðan finnst til dæmis fimm stjörnu dvöl allt niður í sex þúsund krónur þegar þetta er skrifað. Skoðaðu málið 🙂








