Það er ágætt að ritstjórn Fararheill á alltaf birgðir af eldhúspappír í skápum því það kemur afar reglulega fyrir að við slefum meira en góðu hófi gegnir. Eins og eftir að við rákumst á sérdeilis glæsilega siglingu nánast niður alla Ameríku eins og hún leggur sig á glæsilegu skipi og stórkostlegu verði.
Eins og oft er raunin segja myndir meira en mörg orð:
Hér er sem sagt um að ræða tuttugu og tveggja daga siglingu frá Vancouver í Kanada til Valparaíso í Chile eða því sem næst eftir Ameríku endilangri og stoppað í hvorki fleiri né færri en níu löndum álfunnar þar sem gestum gefst tækifæri til að fara frá borði og dúllast.
Hér er æði hentugt að hafa í huga Icelandair flýgur nú beint til kanadísku borgarinnar og því einfalt mál að grípa þessa gæs þó fargjöld til Vancouver séu reyndar í dýrari kantinum. Á hinn bóginn þarf fólk sem þráir slíka ferð að koma sér heim á leið frá Valparaíso að siglingu lokinni. Flug þaðan gæti kostað skildinginn reyndar.
Ferðin atarna er í boði á vef skipafélagsins HollandAmerica sem var nýlega valið besta siglingafyrirtæki síðasta árs á World Travel Awards ferðahátíðinni. Skipið glæsilegt og þar allt í boði sem hugur girnist. Verðmiðinn í klefa með glugga er á þeim vef rétt rúmar 208 þúsund krónur á mann miðað við tvo saman. Gott verð en flugið ekki innifalið og því kannski ekki svo frábært.
En eins og Fararheill hefur bent lesendum á er tóm tjara yfirleitt að kaupa siglingar beint frá skipafélögunum. Við leituðum því aðeins meira á netinu og þessi sama ferð fæst líka á vef CruiseWeb vestur í Bandaríkjunum. Og hvað skyldi ferðin sú kostar þar? Hvernig hljóma 163 þúsund krónur á mann miðað við tvo? Inni í því er meira að segja 25 þúsund króna kredit sem nota má í spilavíti skipsins eða í annað eftir þörfum.
Við erum semsagt búin að finna 22 daga stórfína siglingu í fínum klefa á fínu skipi fyrir 326 þúsund krónur á hjón eða par. Sem er ekkert minna en frábært verð.
Gallinn að til Vancouver er vart komist undir 60 þúsund krónum á mann í október þegar umrædd ferð er í boði og gera má að því skóna að frá Chile kosti flug til Evrópu og heim alla leið varla undir 180 þúsund krónum á mann.
En vitiði hvað? Þrátt fyrir rándýrt flugið er þessi sigling engu að síður á lægra verði en margar af þeim siglingum sem innlendar ferðaskrifstofur eru að bjóða þetta haust og vetur. Þær margar skjaga langleiðina í eina milljón króna fyrir par í káetu með glugga.
Óhrædd að hafa samband ef eitthvað. Við hjálpum.








