Fátt hljómar betur fyrir margan manninn en vetrarsól á Kanarí um jólin og dimmustu mánuði ársins hér heima. Eini gallinn kannski sá að sumum er farið að leiðast helst til mikið eftir viku eða tvær enda svo sem fátt að gera annað en láta sólina leika um líkamann. En það er til lausn á því.

Enginn dallur sem siglir með mannskapinn um Kanaríeyjurnar og Madeira næstu jól. Mynd tui

Enginn dallur sem siglir með mannskapinn um Kanaríeyjurnar og Madeira næstu jól. Mynd ms

Sú lausn felst í tilboði sem þýska ferðaskrifstofan Urlaub-auf-See er að bjóða þessa stundina og á virkilega fínum kjörum miðað við allt og allt.

Þeir þýsku eru að bjóða sérdeilis fínan pakka sem samanstendur af vikudvöl á fjögurra stjörnu hóteli á Maspalomas og þar allt sem hugur girnist í mat og drykk innifalið. Það eitt og sér myndu margir láta nægja bara en Þjóðverjarnir stíga skrefi lengra. Eftir vikudvölina á ströndinni tekur við vikulöng sigling í káetu með svölum á glænýju skemmtiferðaskipi sem siglir sem leið liggur um allar Kanaríeyjurnar og Madeira að auki. Siglingin ekki látin nægja heldur líka stigið í land á þeim flestum. Allt er líka innifalið meðan á siglingunni stendur.

Nú gæti einhver áhugasamur hætt alveg að lesa enda hlýtur að vera morgunljóst að svona lúxusferð kostar skildinginn. Það kostar jú hátt í hálfa milljón króna á mann að dúlla sér í tvær vikur um næstu jól á Kanarí sé farið með Úrval Útsýn svo dæmi sé tekið.

Og hvað kostar svo lúxusferð Þjóðverjanna? Verð rokkar aðeins eftir dagsetningum en langi einhvern að taka pakkann þann 14. desember kosta herlegheitin manninn 291 þúsund krónur miðað við miðgengi dagsins.

Samtals tveggja vikna pakki fyrir hjón eða par alls 582 þúsund krónur plús sá kostnaður sem til fellur að komast til Þýskalands og heim aftur. Sá hluti ferðalagsins ætti vart að kosta manninn meira en 35 þúsund krónur eða svo. Jafnvel þó sá kostnaður sé hærri gildir það einu; þetta er ennþá sérdeilis fínt verð.

Nánar um tilboðið hér.