Skammt er síðan breska lággjaldaflugfélagið Flybe tilkynnti um beint flug hingað frá Birmingham í Bretlandi og enn skemmra síðan Icelandair ákvað að fljúga sömu leið á næsta ári. Icelandair er þó varla samkeppnishæft á þessari flugleið.

Hvað verð áhrærir er engin samkeppni til Birmingham á næsta ári milli Flybe og Icelandair.

Hvað verð áhrærir er engin samkeppni til Birmingham á næsta ári milli Flybe og Icelandair.

Það allavega, er reyndin, skoði fólk fargjöld beggja flugfélaga en Icelandair hefur þegar sett inn áætlanir sínar til Birmingham frá febrúar fram til júní á næsta ári. Samanburður er því mögulegur upp að marki á þeim tíma og leit leiðir í ljós að um helmingi dýrara verður að fljúga með íslenska flugfélaginu.

Allra lægsta fargjald fram og aftur með Icelandair þessa mánuði kostar 40.510 krónur samkvæmt stöðunni um miðjan dag 1. júní 2014. Allra lægstu fargjöld Flybe á sama tímabili fram og aftur kosta tæp 12 þúsund krónur.

Það verð Flybe á aðeins við um flugið og handfarangur en til að fá heilbrigðari samanburð er ráð að bæta við 20 kílóa tösku á mann eins og Icelandair býður upp á. Þrátt fyrir það fer verð á fargjaldi Flybe aðeins upp í tæp 21 þúsund krónur. Munurinn er rétt tæplega 20 þúsund krónur. Það er alltof mikill verðmunur að okkar mati og segir sig sjálft að enginn hendir 20 þúsundum út um gluggann fyrir nákvæmlega sama hlut.