Vissir þú að lúxushótelkeðjan Ritz-Carlton rekur eitt einasta hótel á Kanaríeyjum öllum? Þar er vitaskuld fimm stjörnu plús pakki í boði og nú er hægt að planta rassi þar með 40 prósent afslætti.

Allt fínt og fágað og fullkomið á eina hóteli Ritz -Carlton á Kanaríeyjum.

Allt fínt og fágað og fullkomið á eina hóteli Ritz -Carlton á Kanaríeyjum.

Eins og gefur að skilja hjá slíkri lúxuskeðju er verð æði hátt þrátt fyrir svo góð afsláttarkjör en vikan með morgunverði á tilboðsverði hjá Abama Golf & Spa Resort, eins og hótelið heitir, kostar rúmar 200 þúsund krónur á manninn. Hótelið er staðsett á stórkostlegum stað á Guia de Isora ströndinni á Tenerife.

Bíddu. Ekki fara strax. Verðið dekkar nefninlega ekki bara gistinguna heldur og flug fram og tilbaka til Bretlands og ferðir til og frá flugvelli.

Hér leiðist sennilega fáum nema til þess standi einbeittur vilji. Hér er fyrsta flokks golfvöllur, heilsulind á heimsmælikvarða fyrir utan tíu veitingastaði og þar af einn sem fengið hefur tvær Michelin stjörnur. Sundlaugar, einkaströnd og ýmislegt fleira sem ekki er val um á hefðbundnum fimm stjörnu hótelum oftast nær.

Þetta tilboð er eitt fjölmarga hjá ITC Luxury Travel í Bretlandi þessa stundina en sú ferðaskrifstofa sérhæfir sig í dýrari ferðum hingað og þangað um heiminn. En stundum eigum við það skilið líka.

Tilboðið hér.