Hér er tilboð sem sekkur öllum tilboðum sem í boði eru frá Íslandi til Tyrklands og gott betur. Vika í lúxus í Marmaris og þrír dagar í þokkabót í Istanbúl frá London í maí og október fyrir 85 þúsund krónur á mann miðað við tvo.

Læti og líf í Istanbúl verður hver maður að upplifa einu sinni eða svo.

Læti og líf í Istanbúl verður hver maður að upplifa einu sinni eða svo.

Það gerir svo mikið sem 170 þúsund krónur á parið plús 40 þúsund króna kostnað á haus til og frá London. Samtals skal því greiða fyrir þessa ferð svo mikið sem 250 þúsund krónur fyrir ellefu daga ljúfa dvöl í Tyrklandi. Til samanburðar er allra ódýrasta ferðin sem ferðaskrifstofan Nazar býður hérlendis í maí sjö daga ferð sem kostar manninn tæpar 170 þúsund krónur eða 340 þúsund samtals.

En það er samt ekki verðið sem gerir gæfumuninn hér gott fólk heldur að hér er tvær flugur slegnar í einu höggi. Fyrstu sjö dagana næst afslöppun og kroppurinn verður brúnn og sætur í sólinni í Marmaris og í stað þess að halda svo beint heim er hin ævintýralega Istanbúl sótt heim. Einungis dauðu fólki leiðist þar og þrír dagar duga til að taka inn það allra merkilegasta ef vel er á spöðum haldið.

Ferð þessi er í boði út þetta ár hjá Kreative Holidays sem er viðurkennd ferðaskrifstofa með allar nauðsynlegar tryggingar og leyfi. Ódýrast er þó að ferðast í maí eða október.