Allt útlit er fyrir að forráðamenn Plúsferða séu að uppgötva það sem Fararheill hefur predikað um árabil. Það er bara miklu ódýrara að skipuleggja eigin ferðalög með lággjaldaflugfélögum.

[like_to_read][/like_to_read]
Allra besta verð sem Plúsferðir geta boðið til Kanarí er með lággjaldaflugfélögum og millilendingu.

Allra besta verð sem Plúsferðir geta boðið til Kanarí er með lággjaldaflugfélögum og millilendingu.

Nú auglýsir þessi ferðaskrifstofa Pálma Haraldssonar svokallað sólarlottó til Kanarí á miðvikudaginn kemur og verðið vissulega ágætt eða 79.900 krónur á mann í vikutíma en reyndar gisting á slökum hótelum. Lóttóið er einmitt tilkomið vegna þess að enginn fær vitneskju um hvar gist er fyrr en nánast er komið að brottför.

En það sem vekur nokkra athygli er að aðeins önnur leiðin er í beinu flugi. Heimferðin er tvíleggja og það sem meira er; flogið er með tveimur lággjaldaflugfélögum. Frá Las Palmas er flogið með áætlunarflugi easyJet og frá London og heim með Wow Air. Beðið er á flugvellinum í Gatwick í tæpar fjórar stundir í millitíðinni.

Hver munurinn er á slíku og að skipuleggja eigin ferðir gegnum London, Kaupmannahöfn, Osló eða aðra staði þarf ekki að hafa mörg orð um. Hann er enginn. En það segir helling að allra, allra lægsta verð á ferð sem Plúsferðir geta boðið skuli vera með þessum hætti.

Svo er reyndar eitt sem skýtur í auga varðandi sólarlottótilboðið. Hvergi kemur fram hvort farangur er innifalinn. Svo er almennt ekki þegar flogið er með Wow Air né easyJet og þurfi að greiða aukalega fyrir tösku er hér um blekkingar að ræða.

Plús