Allt lifandi fólk sem ferðast hefur til Flórída hefur líklega stöku sinnum látið sér detta í hug að kíkja á ball, tónleika, skemmtistað eða aðra glamúrstaði meðan dvalið er í fylkinu.

Ælukast í leigubíl í Flórída gæti kostar feitan skilding í framtíðinni

Ælukast í leigubíl í Flórída gæti kostar feitan skilding í framtíðinni

Eins og víðar í Bandaríkjunum kallar slíkt oftar en ekki á ferðalög með leigubíl enda vinsælir dvalarstaðir í Flórída æði oft í nokkurri fjarlægð frá miðpunktum skemmtanalífs. Það á við hvort sem fólk gistir nálægt Orlando, Miami, Fort Lauderdale eða Key West. Þá er stundum fyrir hendi sú hætta að drekka aðeins meira en góðu hófi gegnir eins og gengur. Og lenti mjög drukknir í því í framtíðinni að æla í leigubílum er þörf á að eiga nokkra seðla í vasanum.

Ástæðan sú að fylkisstjórnin íhugar að leyfa leigubílstjórum að taka sérstakt gjald ef farþegar æla í bílunum og það gjald er ekki alveg ókeypis ef marka má fregnir því lágmarkskostnaður er sagður verða 50 dollarar eða tæplega 5.700 krónur miðað við gengi dagsins. Það þarf að greiða á staðnum ella verður leyfilegt að hóa í lögreglu. Það yrði dapur endir á góðu djammi í Flórída.