Það er oft enginn hægðarleikur að eiga börn og oft reynir vel á taugar og þolinmæði á fjölskylduferðalögum. Ekki síst þegar farið er um langan veg. Þá er eitt flugfélag betra en önnur.

[like_to_read][/like_to_read]

 

Aðeins eitt flugfélag býður sérstaka barnaþjónustu á lengri flugleiðum. Mynd Ethidad

Aðeins eitt flugfélag býður sérstaka barnaþjónustu á lengri flugleiðum. Mynd Ethidad

Ethidad flugfélagið er með þeim betri í bransanum og gildir einu hvort miðað er við alþjóðleg verðlaun eða umsagnir flugfarþega. Það er á pari við Qatar Airways og Emirates sem bæði bjóða toppþjónustu þó deila megi um hversu vel farið sé með starfsmennina sjálfa.

Það sem gerir flug með Etihad hugsanlegra betra en flug með öðrum aðilum er sú staðreynd að um borð á öllum lengri flugleiðum fyrirtækisins eru flugþjónar sem fengið hafa leikskólakennslu og er gert að hjálpa sérstaklega foreldrum barna um borð. Það gera þeir með uppátækjum ýmsum meðan á ferðalaginu stendur auk þess sem börnin fá aðeins meiri aðgang um vélina ef vilji er til hjá foreldrum.

Þetta kann að virðast lítilfjörleg þjónusta en Fararheill hefur reynslu af tólf til sextán klukkustunda flugferðum með börn í för og það er meira en að segja. Jafnvel þó börnin séu eins og englar reynir svo langt flug á alla á öllum aldri og andartaks friður er dýrmætur.