Stærsti viðburður í golfheiminum er án alls efa Ryderbikarkeppnin sem fram fer á tveggja ára fresti í Bandaríkjunum og Evrópu. Þetta árið verður mótsstaðurinn hinn gamalkunni Gleneagles völlur í Skotlandi og enn eru til miðar undirbúningsdagana.

Skotar vita hvað til þarf til að halda frægustu golfkeppni heims. Mynd ukcountryhousehotels

Skotar vita hvað til þarf til að halda frægustu golfkeppni heims. Mynd ukcountryhousehotels

Sjaldan hefur verið jafn einfalt fyrir Íslendinga og nú að komast til Skotlands nú þegar tvö flugfélög fljúga þangað reglubundið.

Enn betra er að þó miðar á sjálfa Ryderkeppninna séu löngu seldir fást enn miðar undirbúningsdagana fyrir mótið og því hægt að berja stjörnurnar augum við æfingar og undirbúning sem kannski er bara betra fyrir alla þá sem vilja læra íþróttina.

Mótið sjálft hefst með pompi og prakt 26. september en dagana þrjá á undan er hægt að komast inn á svæðið og spranga um nokkuð að vild.

Miðarnir eru seldir beint af opinberum vef keppninnar og kosta frá 5.500 krónum upp í 7.500 krónur miðað við miðgengi dagsins fyrir fullorðna. Þá er ráð að fara á staðinn með rútu eða strætisvögnum sé þess kostur enda tæplega tvö þúsund krónur hver klukkustund á bílastæðum við völlinn meðan á keppninni stendur.

Vefur keppninnar hér.


Sjá Hvar er Gleneagles í Skotlandi? á stærra korti