Hverjum nema Bandaríkjamönnum hefði dottið í hug að etja saman indjánum og eskimóum í íþróttakeppni?
Hvort sem fólk trúir því eða ekki er þetta staðreynd og nafnið er raunverulega World Eskimo-Indian Olympics og í þokkabót með sérstöku leyfi alþjóða Ólympíunefndarinnar.
Keppnin er haldin í fjóra daga í senn í júlí eða ágúst ár hvert auk þess sem vasaútgáfa fer fram í desember í þeim greinum þar sem snjór og kuldi kemur við sögu. Auðvitað er hér ekki um hefðbundnar íþróttagreinar að ræða nema í litlum mæli og ólíkt hinum alvöru Ólympíuleikum er markmiðið hér ekki endalega fjöldi verðlaunapeninga heldur að fagna og njóta þess kúltúrs og menningar sem indjánar annars vegar og eskimóar hins vegar eru þekktir fyrir á heimaslóðum.
Keppt er í nokkrum afar sérstæðum greinum sem skera eiga úr um hvor þjóðflokkurinn eigi fimari menn og konur og ekki síst hvor þjóðflokkur geti betur bjargað sér og sínum við erfiðar aðstæður. En inn á milli eru hefðbundnari keppnisgreinar eins og söngvakeppni og fegurðarsamkeppni. Keppnin hefur undanfarin ár farið fram við bæinn Fairbanks í Alaska.








