Bæði íslensku flugfélögin Icelandair og Wow Air skjóta fram tilboðum þennan daginn. Sérstaklega eru tilboð Wow í girnilegri kantinum.

Bæði flugfélögin lækka verð til útvalinna borga næstu misserin

Bæði flugfélögin lækka verð til útvalinna borga næstu misserin

Wow Air býður flug aðra leiðina til Kaupmannahafnar allt niður í 10.900 krónur sem reyndar er 11.895 þegar bókunargjald er ofan á komið en samt aldeilis ágætt verð. Sem fyrr er farangur ekki innifalinn en geti fólk ferðast létt er þetta eðalmál og gildir frá febrúar og fram í maí á tilteknum dagsetningum.

Wow er líka að bjóða lækkað verð til Parísar og Berlínar fram í maí. Önnur leiðin til þeirra staða 15.895 krónur. Í apríl og maí er svo hægt að kaupa aðra leiðina til Alicante frá 19.895 eða London frá 13.895 krónur. Ekki leiðinlegt.

Icelandair býður einnig lækkað verð til Pétursborgar í Rússlandi á 17.900 krónur aðra leið sem er aldeilis ágætt líka. Ferðatíminn í júní og fram í miðjan júlí.