Hér er gáta dagsins: Hvort er betra að dvelja átta nætur með hálfu fæði í lok apríl á eynni Madeira eftir páska fyrir rétt tæpar 400 þúsund krónur eða dvelja sjö nætur á sama stað með öllu inniföldu í febrúar fyrir rúmlega tvö hundruð þúsund krónur fyrir tvo?
Fyrra dæmið er eitt tilboð ferðaskrifstofunnar Úrval Útsýn sem býður eina ferð strax eftir páska til þessarar stórkostlegu eyju Madeira og dvalið í höfuðstaðnum Funchal. Beint flug, hálft fæði, fararstjórn og fjögurra stjörnu hótel í átta nætur selur ferðaskrifstofan á 196.084 á mann eða samtals 392.160 krónur.
Seinna dæmið er fjögurra stjörnu dvöl í Funchal líka en með öllu inniföldu, mat og drykkjum, og flugi frá Manchester í Englandi þann 10.febrúar næstkomandi. Sá pakki einn og sér er nú á tilboði hjá þekktri breskri ferðaskrifu á 75.300 krónur á mann miðað við tvo saman. Og svo vill til að næsta sólarhringinn er Icelandair með hraðtilboð til Manchester og fæst flug fram og aftur á 30.500 krónur á mann. Samtals 105.800 á mann eða samtals 211.600 á tvo saman.
Með þessu er ekki verið að gera lítið úr ferð Úrval Útsýn enda til fyrirmyndar að bjóða aðeins fjölbreyttari pakka en verið hefur. Þá er líka um beint flug að ræða og það er alltaf freistandi. En það er líka freistandi að greiða ekki krónu aukalega fyrir mat eða drykk á Madeira og samt spara tæplega tvö hundruð þúsund krónur. Þeim peningum mætti eyða í ágætum verslunum Manchester sem eru nokkuð ódýrari almennt en í London svo dæmi sé tekið.
Tilboð ÚÚ hér og bresku ferðaskrifstofunnar Voyager Direct Travel hér.








