Janúartilboð flugfélaga og ferðaskrifstofa streyma nú inn í massavís og eins og Fararheill hefur bent á er hægt að spara allvænar upphæðir og bóka flugfar og eða pakkaferð núna í stað þess að bíða frameftir vetri. Reynslan sýnir að verð hækka jafnt og þétt fram að sumri þó eflaust detti inn eitt og eitt tilboð á þeim tíma líka.
Wow Air býður núna flug aðra leiðina til Kaupmannahafnar allt fram í maí fyrir 11.895 krónur og er eitt besta tilboð sem frá þeim hefur komið um tíma. Allir sem vettlingi geta valdið án þess að þvælast með tösku með sér ættu að bóka þetta tilboð en með einni tösku er þetta besta boð Wow Air svipað og almenn fargjöld Primera Air sömu leiðina.
Flug aðra leið með eina tösku kostar því 15.390 krónur hjá Wow meðan fargjöld Primera sömu leið alveg fram í apríl með eina tösku með í för kostar manninn 15.098 krónur.
Skal þó hafa í huga að ólíkt Primera eru vélar Wow Air að lenda í Kastrup á eðlilegum tíma yfir daginn oftast nær og ekki um nótt sem er stór plús í okkar bókum.








