Flugfélagið Wow Air, sem kallar sig flugfélag fólksins og lággjaldaflugfélag, reynist vera dýrast í tvo mánuði af þremur næsta sumarið á flugleiðinni til Barcelóna á Spáni samkvæmt nýrri úttekt Fararheill.

Aftur er samanburður Wow Air mjög í óhag samkvæmt nýjustu verðkönnun Fararheill

Aftur er samanburður Wow Air mjög í óhag samkvæmt nýjustu verðkönnun Fararheill

Þetta er önnur sams konar könnunin á tæpum mánuði og aftur kemur íslenska „lággjaldaflugfélagið“ fremur illa út. Wow Air er aldrei með lægsta verð. Best júní, júlí og ágúst býður spænska flugfélagið Vueling og til að bæta helgráu ofan á kolsvart er Icelandair, með sínar 20 kílóa farangursheimildir, að bjóða lægra verð en Wow Air.

Um var að ræða könnun að verði aðra leiðina út og öll aukagjöld með reiknuð og þar með talið bókunargjald Wow Air upp á 995 krónur sem bætist ofan á öll auglýst verð flugfélagsins. Athygli vekur að lægsta fargjald Wow til Barcelóna í júní kostar nú 27.895 krónur en kostaði fyrir mánuði síðan 17.895. Slétt tíu þúsund króna hækkun á 30 dögum. Í þeirri könnun sem sjá má hér var Wow Air heldur aldrei með lægsta verð þessa sömu leið sömu mánuði.

Tekið skal fram að hvorki Wow Air né Vueling leyfa annað en eina handfarangurstösku nema gegn aukagjaldi. Þar líka er Wow Air mun dýrara. Íslenska flugfélagið heimtar 3.495 krónur fyrir hverja 20 kílóa tösku meðan spænska flugfélagið krefur farþega um 2.068 krónur fyrir sömu tösku. Væru töskugjöld tekin með er Wow Air allt næsta sumar dýrasta flugfélag landsins ólíkt því sem forstjóri þess hélt fram í nýárstilkynningu sem fjölmiðlar birtu blygðunarlaust.

Könnunin gerð kl 23:30 þann 13. janúar 2014 og leitað samtímis á öllum bókunarvélum flugfélaganna. Hafa skal í huga að í öllum tilfellum voru allra lægstu fargjöldin aðeins mjög takmarkað í boði en meðalverð þessa leið allnokkuð hærra. Evrumynt Vueling breytt yfir í krónur miðað við miðgengi krónu í gærkvöldi.